send link to app

Sjónvarp Símans app for iPhone and iPad


4.8 ( 1168 ratings )
Photo & Video Entertainment
Developer: Síminn
Free
Current version: 2.8.2, last update: 6 months ago
First release : 26 Oct 2013
App size: 52.25 Mb

Í Sjónvarp Símans appinu getur þú notað Sjónvarp Símans Premium, horft á dagskrá sjónvarpsstöðva, notað Tímaflakk, séð kvikmyndir, barnaefni, sjónvarpsþætti og horft á Frelsi sjónvarpsstöðvanna í iPhone og iPad. Ekki er hægt að leigja efni beint úr tækjum með iOS stýrikerfi en hægt er að spila efni sem nú þegar er í leigu í gegnum Sjónvarp Símans og auk þess er hægt að horfa á allt efni sem er á 0 kr. í Sjónvarpi Símans.

Til að nota appið þarft þú að vera með áskrift að Sjónvarpi Símans, eða vera farsímanotandi hjá Símanum. Til að geta fullnýtt sjónvarpsáskrift þína notar þú innskráningu fyrir myndlykil og parar þar með tækið þitt við þá áskrift sem er á myndlykli. Í innskráningarferlinu færðu nánari leiðbeiningar um það hvernig þú parar appið við myndlykil Sjónvarps Símans. Hægt er að skrá allt að fimm snjalltæki á hverja sjónvarpsáskrift en aðeins eitt tæki getur spilað í einu.

Ef þú ert farsímanotandi hjá Símanum getur þú notað innskráningu fyrir farsíma og fengið aðgang að Þættir í símann sem er valið úrval af sjónvarpsþáttum úr Sjónvarp Símans Premium.
Einnig er hægt að prófa fríútgáfu af appinu með takmörkuðum eiginleikum.

Appið er hægt að nota á öllum internettengingum innanlands, WiFi, 3G, 4G og 5G. Ef horft er á efni yfir farsímakerfi (3G, 4G eða 5G) nýtir það innifalið gagnamagn á sama hátt og aðrar veitur sem bjóða upp á áhorf í snjalltækjum.

Mánaðargjald fyrir notkun apps tengt við sjónvarpsáskrift er 500 krónur fyrir allt að fimm handtæki.